Arts
Í þessum þætti bregða strákarnir undir sig betri fætinum og fara upp fyrir Elliðaárnar. Stefnan var tekin á Ölvísholt þar sem að hún Ásta Ósk Hlöðversdóttir ræður ríkjum. Þar var ekki í kot vísað og sagði Ásta strákunum upp og ofan af starfseminni Ölvísholti, hvernig hún fór í brugg, allt á meðan hún bruggði bjór. Í þessum þætti var smakkað: Skjálfti Freyja Wit bjór Freyja Bláberja Wit Rauðvínstunnuþroskuð Jóra, imperial stout Hvítvínstunnuþroskaður Skaði Laufey – sambrugg kvenna í bjórgerð Hercule Peru og engifer skyrsúr