News
Deila Breta og Evrópusambandsins um framkvæmd Brexit-samkomulagsins á Norður-Írlandi virðist komin í harðan hnút. Fundur í Lundúnum í gær var árangurslaus, Frost lávaraður, samningamaður Breta, sagði engan árangur hafa orðið en viðræðum hefði ekki verið slitið. Maros Sefcovic, formaður saminnganefndar ESB, sagði að þolinmæði sambandsins gagnvart Bretum væri orðin ansi lítil. Þetta ræddu Björn Þór Sigbjörnsson og Þórhldur Þorkelsdóttir við Boga Ágústsson í Heimsglugganum á Morgunvakt Rásar-1. Frost segir ESB vilja túlka Brexit-samninginn afar bókstaflega, fulltrúar ESB segja Breta brjóta alþjóðalög með einhliða aðgerðum meðal annars með því að framlengja aðlögunartíma Norður-Íra. Samkvæmt Brexit-samningnum er Norður-Írland hluti af innri markaði Evrópusambandsins og þar eiga að gilda matvælareglur ESB. Þar með ættu matvæli framleidd í Bretlandi að sæta innflutningseftirliti, þar á meðal unnar kjötvörur eins og pylsur. Breska stjórnin segir að húnm vilji tryggja að Norður-Írar hafi sama úrval í verslunum og aðrir Bretar. Fyrir meira en 30 árum gerði BBC firnavinsæla og góða seríu, Yes minister, sem var beitt satíra á pólitík, embættismenn og stjórnsýsluna. Þarna eru aðalhetjurnar ráðherrann Jim Hacker, ráðuneytisstjórinn sir Humphrey Appleby og Bernard Woolley, sérlegur aðstoðarmaður ráðherrans. Eitt ýktasta atriði seríunnar er þegar að Hacker slær sig til riddara með því að fara í slag við ESB vegna meintrar tilraunar búrókratanna í Brussel að banna bresku pylsuna. Ýmsum þykir sem veruleikinn sé líkur 30 ára gamalli gamanþáttaröð.