Arts
Orð af orði - þáttur um íslensku og önnur mál. Í þættinum verður sagt frá handritinu Ormsbók, sem meðal annars geymir Fyrstu málfræðiritgerðina, stórmerka heimild um hljóðkerfi forníslensku sem samin er í anda latneskra fræðirita. Sömuleiðis verður rætt um lágmarkspör og hvernig þau varpa ljósi á hljóð og tónfall tungumála - jafnt íslensku sem víetnömsku. Umsjón: Guðrún Línberg Guðjónsdóttir og Bjarni Benedikt Björnsson