Miscellaneous
Bardaginn við hyrnda djöfulinn hefst, en ná þau að bjarga Fjólu áður en það er of seint? Eftir atburðina, þá halda þau á leið úr skóginum, en það virðist vera að drekinn Viridia sé komin á slóð þeirra, að leita hefnda eftir morðið á afkvæmi sínu...Svandís leikur Nomanuk, sem er minotaur paladin á áttunda stigi. Ívar leikur Egor, firbolg drúíða á áttunda stigi. Kristín leikur Gyu, sem er útvörður á sjöunda stigi, og fyrsta stigs laumupúki. Jói er leikja-, spuna-, og dýflissumeistari þáttarins.