News
„Líður ekki öllum vel þegar þeir hafa gert vel og fólk segir þeim það. Auðvitað er alltaf gott að fá viðurkenningu, það er partur af lífinu.“ Arnar Þórison yfir-pródúsent ræðir um þriðjudagsþátt Kveiks; Rekstrarumhverfið á Íslandi, túrisma, viðurkenningu og gagnrýni, svo dæmi séu nefnd. Ingvar Haukur Guðmundsson pródúsent rifjar upp tökur, í því sem hann kallar Ikea-Wallstreet hverfi London borgar, sem sýnir hvernig farir kvikmyndagerðarmannsins eru ekki alltaf sléttar. Þá fer Ingólfur Bjarni Sigfússon umsjónarmaður yfir umfjöllunarefni þáttar þriðjudagsins og aukna spennu í baráttunni um ítök og yfirráð á norðurslóðum sem hann segir að hafi gert það að verkum að fáir vildu tala um efnið í mynd. „Þessi aukna spenna hafði greinilega hlaupið í vísindasamfélagið og allir voru hræddir um að segja eitthvað sem væri vitlaust eða kæmi þeim illa.“

