News
Tvö mál voru tekin fyrir í Kveiksþætti vikunnar; fækkun skordýra og mikilvægi uppljóstrara. Þrátt fyrir að vera ansi ólík eiga þau það sameiginlegt að varða hagsmuni okkar allra. Sigríður Halldórsdóttir, umsjónarmaður segir að það hafi tekið á að fjalla um fækkun skordýra og lýsir þáttaefninu sem ótrúlega áhugaverðu en líka hræðilegu. „Það fer inn í hjartað á manni.“ Sigríður og Arnar Þórisson yfir-pródúsent fara yfir stóru málin, fiðrildaveiðar, þáttagerðina og hvað sé hægt að gera sér til skemmtunar á 500 kílómetra ferðalagi milli landa. „Ef við höfum ekkert til að tala um segir hann mér bara einhverjar lygasögur.“ Lára Ómarsdóttir umsjónarmaður segist oft hafa tekið við gögnum frá fólki sem vill koma upplýsingum um brot eða ámælisverða háttsemi á framfæri, og það við allskonar aðstæður; í bílakjallara, bílskúr í Kópavogi og á heimili fólks, svo dæmi séu nefnd. Oft þurfi að glíma við viðfangsefnið og vinna að því að koma því vel og rétt til skila. Að halda sinni persónulegu skoðun utan þáttagerðarinnar sé hluti af því enda mikilvægt að allar raddir og sjónarmið fái að heyrast, segir Freyr Arnarson pródúsent.

