1. Höfuðhögg: „Það er verið að fórna heilsu þessa unga fólks“

Share:

Kveikur

News


„Ég fer kannski í viku í tökur og hugsa ekki um neitt annað en þær tökur. Svo daginn eftir þarf ég að láta þær alveg eiga sig og fer að hugsa um þetta innslag til dæmis og er alveg fastur í því, þangað til í dag. Þetta er eiginlega bara svona andlegt sjokk þegar þú ert búinn að vera fastur með athyglina á einhverju í svona langan tíma. Maður er búinn að vera læstur niðri í kjallara í einhverju klippherbergi svo það er alltaf jafn gaman að sjá að þátturinn er kominn út og fá einhver viðbrögð.“ Svona lýsir Ingvar Haukur Guðmundsson, pródúsent Kveiksþáttar þriðjudagsins, framleiðsluferlinu í hnotskurn. Hann ásamt Ingólfi Bjarna Sigfússyni umsjónarmanni þáttarins ræddu um þáttagerðina, umfjöllunarefnið, viðbrögð við þættinum og næstu skref. „Þetta er búið að vera barnið manns í einhvern tíma og svo fer það bara úr hreiðrinu og maður verður að snúa sér að næsta. Tjaldið fellur og næsta tekur við,“ segir Ingólfur.